top of page
dw+ 233.jpg

Filigran veggeining (með einangrun)

Filigran veggeiningar (með einangrun): Welcome
Precast-Wall-20_edited.jpg
  1. Forsteypt veggplata (innri ≥ 6cm | ytri ≥ 7cm)

  2. Tengipinni (ThermoMass eða álíka)

  3. Bending steypustyrktarstál

  4. Einangrun

  5. Holrými fyrir staðsteypu


Veggeiningar frá Stafverk eru einfaldar og þægilegar í notkun. Við bjóðum veggeiningar sem eru 360mm upp í 450mm á þykkt. Hæð og lengd á veggeiningunum er sniðið að þinni framkvæmd. Breiðustu veggeiningar eru 2,4m á breidd og hæstu veggeiningar eru 5m. Möguleiki er þó að sérpanta hærri veggeiningar.

Einingar afhendast fullfrágengnar að utan og innan með sléttri, steyptri, stálmóta áferð, tilbúnar undir holufyllingu og málningu.

Með veggeiningunum frá Stafverk fæst hraði og gæði forsteyptu eininganna og styrkur og þéttleiki staðsteypunnar. Veggir og plötur eru oft steypt í einni og sömu steypunni. Sérstaklega hentugt þegar notaðar eru útveggjaeiningar frá Stafverk þá er ytri skel einingarinnar steypt hærri sem nemur þykkt væntanlegrar plötu. Þannig er gengið frá plötukantinum um leið og útveggjaeiningunni er stillt upp.

Hægt er að fá járnbendingu í einingarnar sérstaklega eins og óskað er eftir hverju sinni eða hönnun gerir ráð fyrir

Þessar einingar eru að jafnaði 1 til 2 tonn að þyngd þannig að meðalstór krani getur sinnt allri vinnu við uppsetningu þeirra.

Filigran veggeiningar (með einangrun): Services
bottom of page