top of page
tw einfaldur.jpg

Filigran veggeining (án einangrun)

Filigran veggeiningar (án einangrun): Welcome
Precast-Wall-19_edited.jpg
  1. Forsteypt veggplata ≥ 5cm

  2. Lóðrétt stálgrind (L. girder)

  3. Bending steypustyrktarstál

Veggeiningar frá Stafverk eru einfaldar og þægilegar í notkun. Við bjóðum veggeiningar sem eru 180mm upp í 400mm á þykkt. Hæð og lengd á veggeiningunum er sniðið að þinni framkvæmd. Breiðustu veggeiningar eru 2,4m á breidd og hæstu veggeiningar eru 5,0m. Möguleiki er þó að sérpanta hærri veggeiningar.

Einingar afhendast fullfrágengnar að utan og innan með sléttri steyptri stálmóta áferð, tilbúnar undir holufyllingu og málningu

Með veggeiningunum frá Stafverk fæst hraði og gæði forsteyptu eininganna og styrkur og þéttleiki staðsteypunnar. Veggir og plötur eru oft steypt í einni og sömu steypunni. Sérstaklega hentugt þegar notaðar eru útveggjaeiningar frá Stafverk þá er ytri skel einingarinnar steypt hærri sem nemur þykkt væntanlegrar plötu. Þannig er gengið frá plötukantinum um leið og útveggjaeiningunni er stillt upp.

Hægt er að fá járnbendingu í einingarnar sérstaklega eins og óskað er eftir hverju sinni eða hönnun gerir ráð fyrir.

Þessar einingar eru að jafnaði 1 til 2 tonn að þyngd þannig að meðalstór krani getur sinnt allri vinnu við uppsetningu þeirra.

Filigran veggeiningar (án einangrun): Services
bottom of page